Heimsækja vef

Senda póst

 

 


Viðeyjarferjan er með aðstöðu við Korngarð í Sundahöfn og siglir til Viðeyjar árið um kring. Siglt er eftir fastri áætlun frá 1. júní til 1. september. Á öðrum tímum er siglt eftir pöntunum.

Hægt er að panta leiðsagnir allt árið um kring í síma 693-1444 eða í netfangi videy@rvk.is Leiðsagnir eru miðaðar eftir óskum hvers hóps fyrir sig. Hægt er að fá stuttan 10-15 mínútna pistil um sögu Viðeyjar í kirkjunni, ganga um nágrenni Viðeyjarstofu og fjalla um húsin, fornleifauppgröftinn og fjós Eggerts Briems, einnig er hægt að fara í lengri gönguferðir annað hvort í vestur og tala um Virkishöfðann, Ingvarsslysið og listaverk Richard Serra eða í austur og fara uppá Skúlahól og Kvennagönguhóla og fara síðan í þorpið þar sem farið er yfir merka sögu þess.

Upplýsingar og pantanir fyrir hópa í síma 892-0099

 
Activities | Accommodation | Car Rentals | Culture | Restaurants
Tours & Transportation | Taxfree Shopping | Sitemap | Home

Please mail to webmaster@travelnet.is if you have any comments or questions about this website. Copyright 1997-2009 Travelnet.is