Back to Homepage

English

transp.gif (848 bytes)
Á leið um landið - Aðalvalmynd
Norðurland - Aðalvalmynd

Svalbarðseyri - Á staðnum
Svalbarðseyri - Kort

Svalbarðsströnd liggur öll undir hlíðum Vaðlaheiðar, um 14 km frá norðri til suðurs, og er innsti hlutinn af austurströnd Eyjafjarðar. Landnámsjörð sveitarinnar er Sigluvík þar sem Norðmaðurinn Skagi Skoptason nam land að ráði Helga magra, sennilega um árið 900. Í dag eru íbúar um 330 talsins.

Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem verið hefur í örustum vexti á Svalbarðsströnd. Þar er nú rekið hótel, nokkur gistiheimili og eitt best búna tjaldsvæði landsins. Fyrir ferðalanginn er líka ýmislegt að sjá og skoða. Safnasafnið er til að mynda eina listasafnið í sveit á Íslandi og náttúruunnandinn getur fundið fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir. Bíltúr yfir gamla Vaðlaheiðarveginn er mikil upplifun en vegurinn er ágætlega fær öllum bílum að sumarlagi og útsýnið svíkur engann.

Í byggðakjarnanum á Svalbarðseyri búa um 180 manns. Þar er miðstöð sveitarinnar, nýbyggður grunnskóli, leikskóli og sundlaug. 

Í sögu sveitarinnar, Svalbarðsstrandarbók, sem út kom árið 1964, eru leiddar að því líkur að kirkja hafi verið á Svalbarði frá miðri 12. öld. Árið 1846 var reist timburkirkja á Svalbarði og rifin kirkja sem þá var 94 ára. Nýja kirkjan var fyrsta timburhús sveitarinnar. Hún þjónaði Svalbarðsströndungum vel og lengi og er enn í fullri notkun því hún var síðar flutt til Akureyrar og er nú þekkt sem Minjasafnskirkjan á Akureyri. Núverandi kirkja á Svalbarði var byggð á árunum 1952-57. 

Nábýlið við Akureyri hefur óneitanlega mikil áhrif á sveitarfélagið og íbúa þess enda eiga Svalbarðsströnd og Akureyri mikið og gott samstarf á ýmsum sviðum. Ekki tekur lengri tíma að aka milli Svalbarðseyrar og Akureyrar en úr úthverfum Akureyrar og niður í miðbæ enda stunda fjölmargir Svalbarðsströndungar vinnu á Akureyri.

 

Hótel og gistsiheimili    

transp.gif (848 bytes)
Where your travel begins !

Á Leið um Landið | Norðurland  | Svalbarðseyri  - Á staðnum | Svalbarðseyri - Kort

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is.