Back to Homepage

English version

Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)
Vestfirðir

Á staðnum

 

 

 

Velkomin til  Flateyrar

Á Flateyri við norðanverðan Önundarfjörð hefur verslun verið stunduð frá því fyrir 1800. Norski umsvifamaðurinn Hans Ellefsen reisti þar hvalveiðistöð árið 1889 og var hún eitt stærsta fyrirtæki landsins. 

Stöðin brann rúmum áratug síðar og hóf Ellefsen þá smíði annarrar litlu innar við fjörðinn. Verkinu var hætt þegar búið var að hlaða reykháfinn og stendur hann enn rétt við þjóðveginn. 

Áður en Ellefsen fluttist brott gaf hann Hannesi Hafstein íbúðarhúsið sitt á Sólbakka ofan við Flateyri. Sumir segja að hann hafi selt honum húsið á eina krónu, aðrir segja fimm krónur. Hannes lét taka húsið sundur og flytja til Reykjavíkur. 

Þetta glæsilega hús er nú Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu. Undirlendi fyrir botni Önundarfjarðar er víðlent á vestfirskan mælikvarða og þar er mikið fuglalíf. Gullin sandströndin undan Holti er falleg og hrein og tilvalinn vettvangur strandferða. 

Á Flateyri fást kajakar á leigu ásamt leiðsögn og þannig er hægt að skoða ströndina og fuglalífið frá nýstárlegu sjónarhorni. 

Íbúar á Flateyri eru um 300.

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is