Back to Homepage Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)Vesturland

Á staðnum

Velkomin til Dalabyggðar

Búðardalur er þjónustumiðstöð Dalabyggðar. Dalabyggð er ungt sveitarfélag sem varð til þegar öll sveitarfélög Dalasýslu nema Saurbær ákváðu að sameinast. Dalabyggð er kjörinn útivistarstaður. Byggðin er þekkt fyrir frægar laxveiðiár svo sem Laxá í Dölum. Margar aðrar ár eru í Dalabyggð bæði góðar lax- og silungsár sem og fjöldi veiðivatna. Kyrrð og fegurð náttúrunnar er það sem einkum heillar ferðamenn sem hingað koma. Dalir eru sögufrægt hérað og þeir sem una fornsögum ættu að hafa Laxdælu og Sturlungu í huga þegar þeir fara um héruð í Dalabyggð. Göngufólk getur valið um margar leiðir og miserfiðar. Hestamenn eiga einnig gott val á leiðum um sveitina og einnig yfir í önnur sveitarfélög. Í Búðardal er gistiheimilið Bjarg opið allt árið að Laugum er Edduhótel starfrækt á sumrum. Veitingar eru í Dalabúð í Búðardal sem og á Edduhótelinu á Laugum. Byggðasafn er að Laugum. Fólk sem dvelur í orlofshúsum í Borgarfirði getur valið sér styttri og lengri ferðir á bíl um Dali og Reykhóla, styttri ferðir eru t.d. um Mýrar og Heydal og Bröttubrekku með viðkomu í Búðardal önnur slík leið er um Bröttubrekku Laxárdal og Holtarvörðuheiði með viðkomu í Búðardal. Lengri ferð er um Dali fyrir Klofning og til baka , leið þar sem farið er um sögufræg héruð og síbreytilegt landslag.
Í Búðardal er að finna alla almenna þjónustu við ferðamenn svo sem banka-, póst-, lögreglu- og heilsugæsluþjónustu. Þá er vert að benda sælkerum á að Mjólkurbúið er með ostabúð sem vert er að heimsækja. Það er von okkar að þeir sem sæki okkur heim gefi sér tíma til þess að njóta þess sem landið býður sem og þjónustu okkar.

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is