Eldborg er formfagur eldgígur sem gaus fyrir þúsundum ára, og rann þá frá henni allstórt hraun sem nú er orðið mjög skógi vaxið allvíða. 

Eldborgin er nánast hringlaga gígur sem er 100 metra yfir sjáfarmáli. Hægt er að ganga upp á hana og er útsýni frá henni frábært í góðu veðri. Þegar gengið er á hana er farið frá Snorrastöðum, er þá best að leggja sínu farartæki þar á bílaplani og gengið er frá brúnni á Snorrastöðum. 

Gönguleiðin er ekki merkt en auðvelt er að sjá leiðina, því mikið er gengið á hana, u.þ.b. 2500-3000 manns á ári, það tekur á milli 2-3 tíma að ganga fram og til baka. Eldborgin er friðlýst náttúruvætti og skal gengið um hana sem slíka. 

Fyrir alla sem koma og ganga á Eldborg og aðra gesti þá eru almennings salerni í stóra hvíta húsinu (gengið inn baka til)

 

 

Til Baka